20.11.2007 15:09:05 / Hafdís

Nýtt blogg

 

Hef flutt búferlum yfir á

http://hafdeez.bloggar.is/

Endalaust vesen hér. Það er lykilorð á hina síðuna. Sendið mér bara línu á hafdeez@gmail.com ef þið viljið fá l.orðið. 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 22:27:52 / Hafdís

Furðulegur dagur

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið furðulegur dagur.

Það er búið að vera frekar erfitt í vinnunni sérstaklega í dag og í gær. Þannig er að ótal mörg mál eru föst hjá okkur og fá ekki úrlausn því kerfið erlendis sem leysir úr þeim er bilað og búið að vera í 2 vikur. Maður gat afsakað fyrstu vikuna en þetta er að verða frekar leiðinlegt og kúnnarnir skiljanlega mjög pirraðir.

Allavega, þessi dagur kom alveg frá helvíti eiginlega. Allt gekk á afturfótunum í vinnunni, allt of mikið að gera, vorum ekki að komast yfir allt okkar + það að vera með endalaust kvabb vegna þessarar bilunar, sem við getum by the way ekkert gert í því bilunin er í Indlandi! Þannig að ég er búin að vera að senda email og hringja út í þetta curry and rice lið í Indlandi og reyna að fá úrlausn en almáttugur, þau skilja varla neitt greyin. Það þarf að maaaargtyggja sömu upplýsingarnar fyrir þau, stundum tekst það bara alls ekki. :^)

En svo kom heildsalan og reddaði deginum okkar. Við vorum 2 þarna á suðupunkti þegar þau komu 3 úr heildsölunni með risa rauðvíns og ostakörfur. Það fyrsta sem ég hugsaði var, "ok, hvert ætli við eigum að senda þetta"? En svo var þetta bara sett á borðin okkar og sagt "gjörið svo vel". WHAT! Þá höfðu þau fengið svo frábært feedback um þjónustuna og framkomu af okkar hálfu að við fengum þessa mjög veglegu gjöf. Við vorum alveg orðlausar, héldum fyrst að þetta væri eitthvað djók. En nei, síður en svo.

Þetta bjargaði alveg deginum, ekki bara að fá gjöf, heldur hrósið og viðurkenningin. Það að einhver taki eftir því að maður standi sig vel og láti það berast. Það er aðalgjöfin. :haha:

Svo var það veðrið. Það var aldrei eins í 5 mínútur. Fyrst kom brjálað rok og rigning, svo kom næstum eins og haglél svo ég einni mínútu var eins og einhver hefði slökkt á vindinum og dregið gluggatjöldin frá. Þá var bara komin sól og blíða. Fáránlegt veðurfar. 

En jæja, ég ætla að bragða á einum osti eða svo. Hafa það smá kósý.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 10:11:44 / Hafdís

Sigur

Það var ótrúlega gaman hjá mér í gær. Eftir að vinnudegi lauk fór deildin mín á fund þar sem okkur var skipt í hópa og sinntum ákveðnu verkefni, við kynntum það svo í lok fundarins. Eftir það fórum við á Billiard Barinn, fengum okkur að borða og spiluðum billjarð. Það var ótrúlega gaman. Ehemm.. maður var nú aðeins ryðgaður svona í fyrstu en eftir smá stund var ég farin að rúlla þessu upp. ;)

Ég vann 3 leiki og hefði unnið þann fjórða nema hvað að þegar ég var að skjóta svörtu niður þá vildi sú hvíta mikið frekar fara ofan í og þar með var leikurinn tapaður. Mótherjinn átti enn nokkrar kúlur eftir, svo þetta var súrt tap. :evil:

En svo sátum við frammi í sófunum og kjöftuðum saman. Úffhh.. hvað við erum öll fyndin, við veltumst um af hlátri, fólk hefur líklega haldið að við værum á einhverju en nei.. það var ekki svo.

Ég var komin heim um miðnætti eftir að hafa keyrt Magneu og Jóhann Inga heim. Ég er ekki vön að endast svona, sérstaklega eftir langan vinnudag en það sem gerði gæfumuninn var reykleysið inni á staðnum. Þvílíkur munur að geta verið á svona stað og ekki verið að kafna og þurfa að fara heim með höfuðverk, sviða í augum og illa lyktandi. I love it! :haha:

"Litla barnið" mitt á svo afmæli á morgun svo það er afmælisveisla í undirbúningi. Ótrúlegt að hann sé að verða 3 ára. 8|

En jæja, læt þetta verða stutt í dag.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 10:09:23 / Hafdís

Afmæli

Set þessa færslu inn núna, svolítið seint en hún komst ekki inn um daginn sökum bilunar í kerfinu.

Skrifað 15 október. 

Jamm stelpan átti afmæli á laugardaginn. Alltaf gaman að eiga afmæli. Í tilefni þess fór ég með Soffíu og Hófý vinkonum mínum út að borða á Ítalíu. Jömmí. Hefði verið til að fara TIL Ítalíu en þetta var fínt fyrst hitt var ekki hægt. :lol:

Stelpurnar gáfu mér góða hvítvín til að dreypa á við gott tækifæri og við borðuðum góðan mat og kjöftuðum í um 2 tíma. Í lok máltíðarinnar færði veitingahúsið mér risa ísrétt í boði hússins og ég fékk aukaskeiðar og við stelpurnar deildum gleðinni. Takk fyrir mig.

Við fórum nú svo bara allar heim eftir þetta en Hófý hélt upp á barnaafmæli í gær og ég og systa héldum afmæliskaffi fyrir fjölskylduna.

Ég fékk æðislegar gjafir. Fékk pening frá mömmu, pabba og Steinþóri, og keypti mér 2 pör af skóm fyrir það ;) Frá Kristínu og co fékk ég geisladiskinn Human Child með henni Eivöru minni sem ég tel vera himneska veru, get ekki líst henni betur. Finnst hún hreint æðisleg. Frá Írisi og co fékk ég mjög flott veski/hliðartösku. Svona Mary Poppins tösku sem tekur endalaust við drasli, ég elska þannig töskur. :D

Nú er bara afmæli sonarins eftir en það er um næstu helgi. 3 ára, úffh... :$ þetta er svo fljótt að líða.

 

Í mestri spilun hjá mér þessa dagana er, öllum að óvörum, Human Child með Eivöru Pálsdóttur og Soulmate með Natasha Bedingfield.

Yfir og út


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 20:49:49 / Hafdís

Helv... blogg

Ég var búin að skrifa heila færslu hér í dag, ekkert stutta, þegar helv.. datt út :cry: og ég náði henni ekki aftur. Varð alveg brjál.... Nú er ég aðeins búin að jafna mig.

Ég er að kafna úr leiðindum þessa dagana. Hef ekkert farið í vinnu síðan á mánudag í síðustu viku. Við erum bæði búin að vera veik mæðginin en drengurinn fór í leikskóla í dag. Ég fer ekkert fyrr en eftir helgi.

Lét undan þrýstingi í gær og fór til læknis. Þvílík dramadrottning. Hann setti mig í hjartalínurit og sendi mig svo á bráðamóttöku *dæs* Þar tók við venjulega blóðtökuævintýrið. Það þurfti reyndar bara 7 stungur núna, það voru 9 síðast, metið er 13. Það er frekar erfitt að ná blóði úr mér. Þetta er ekkert gefins stöff you know.;)  Allavega kom ekkert út úr því annað en það sem læknirinn var búinn að segja, ég er með berkjubólgu í rénun svo ég á bara að vera innivið fram yfir helgi og ekkert reyna á mig. Verð bara þvílíkt móð af því að skipta um skoðun, svona næstum því allavega. Þarf ekkert til að þreyta mig. Þetta er vonandi allt að koma því ég meika ekki meiri inniveru.

Það styttist í afmælið mitt, jei, bara 9 dagar. Ef ég geri eitthvað, þá verður það út að borða á Ítalíu með stelpunum mínum, my pípz og kannski bara keila á eftir eða eitthvað. Nenni ekki að gera mikið úr þessu enda ekkert stórafmæli. Svo er ég með barnaafmæli helgina eftir.

Ég hef aðeins náð að saxa á efnið í flakkaranum mínum. Horfði á Köld Slóð í dag. Hmmm...:|  er bara svona ok. Mjög dimm og drungaleg en plot'ið var fínt. Vel leikin.

Svo horfði ég á, The Messengers. Íúú... mæli nú ekkert með henni, ekki sérlega innihaldsrík og skilur ekkert eftir sig. Þetta er svona hrollvekja. Öll bregðuatriðin voru mjög fyrirsjáanleg svo mér brá ekki neitt, nema þegar einhverjir krakkabjánar ákváðu að gera í mér dyraat, shit, þá hrökk ég við 8|

Í gær og fyrradag horfði ég á fyrstu 2 Bourne myndirnar. Þær eru ok. Ég var kannski búin að búast við of miklu en jú jú, flottar brellur, mikil æsingsatriði og Matt Damon kom mér á óvart með það að geta leikið. Mig langar allavega að sjá þriðju myndina.

Svo horfði ég á eina frekar ichy um daginn. Hostel 2. Hún var alls ekki eins gróf og fyrri myndin fannst mér. En aftur voru brellurnar og grafíkin mjög flott. Þarna voru aðeins þekktari leikarar á ferð heldur en í fyrstu myndinni, mér fannst það skemma svolítið. Hún endaði þó á svolítið óvæntan hátt og það var gaman að því, eða já, gaman og ekki gaman. 8|

Mikið er Tarantino sick í hausnum. En ég verð þó að viðurkenna að mér finnast flestar myndirnar hans góðar. Pulp Fiction og Reservoir Dogs eru í uppáhaldi. Sennilega er það tónlistin í myndunum sem gerir það að verkum. Svo er bara eitthvað ótrúlega kúl við þær.

En jæja, nú ætla ég að muna að gera copy af þessu áður en ég save'a, svo þessi færsla glatist ekki líka.

Over and out 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 22:25:35 / Hafdís

Þetta höfðu börnin að segja..

..

"Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og verða kannski hjón?"
-Finnur 10. ára.

"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.
"mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
blaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.
"Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.

"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.

"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.

"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar  7. ára.
"Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára
"Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.

"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir
að fela þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar mig og verða skotnar í mér."  
-Davíð 8. ára.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 23:15:59 / Hafdís

*Hóst*sjúguppínef*

Já takk fyrir, ég er komin með pestina. Hún fæst gefins og ég sendi hvert á land sem er!!

Jukk, ég hljóma eins og drukkinn sjóari þegar ég tala. Þetta týpíska, hálsbólga, kvef, hósti, eyrnaverkir og með því. Ég er búin að vera í vandræðum með augun á mér undanfarna mánuði en það lekur endalaus vökvi úr þeim (tár), ég er samt ekki grenjandi fattið þið!

Allavega, þetta var orðið frekar þreytandi svo ég pantaði mér tíma hjá augnlækni. Það er eitthvað sem ég hef forðast að gera frá því ég varð sjálfráða eða svona, næstum því.

Ótti minn varð að veruleika, ég þarf að fá mér gleraugu 8| . Sko mér finnst gleraugu mjög töff á sumu fólki en ekki mér, nooo thank you. Ég er með +3.75 á hægra auga, frekar slæmt, og +0.75 á því vinstra, sem er ok en það örlar samt á fjarsýni þar líka. Svo doktorinn sagði að ég bara yrði að fá mér gleraugu sem ég á að vera með alveg í vinnunni allavega því ég er þar við tölvu allan daginn og það fer svo illa með augun á mér. Sjónin mældist verri núna en síðast og með tilliti til þess fannst henni þetta brýnt. Ég er ekki fyrir það að láta mikið á mér bera. Ég er svona að spá í þessi hér fyrir neðan, hvað finnst ykkur?

 En allavega, ég er farin inn að horfa á flakkarann minn.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 10:26:00 / Hafdís

Back on track

Sumir eru að bögga mig vegna bloggleti minnar, svo ég bæti hér með úr því.

Ég fór uppí bústað um helgina. Oh hvað ég þurfti á því að halda. Ég tók drenginn með mér og svo komu Guðbjörg vinkona og dóttir hennar sem er 1 degi yngri en Róbert minn. :) Vorum meira að segja saman á deild. :D

Við Guðbjörg erum saman í Heimspeki 103 og við áttum að gera 3 verkefni, svo við drifum í þeim um helgina. Þetta fag er svo mikið umræðufag svo það er gott að geta talað við einhvern um þetta. Þetta er frekar þungt efni, allskonar kenningar, fræði og grísk nöfn og ártöl en mér finnst þetta samt lúmskt gaman. ;)

Við vorum svoleiðis búnar að ákveða að sukka um helgina og vorum með íískalda hvítvín í ísskápnum. En við klikkuðum á þessu öllu eiginlega, borðuðum lítið og gleymdum að drekka vínið, glataðar!! En flaskan bíður bara betri tíma. Við ætlum að fara í nóv/des fyrir prófið og læra saman. Þá kannski opnum við eina húsavín.

Ég er búin að segja mig úr stærðfræðiáfanganum sem ég var í. :( Þetta var bara ekki að ganga upp gagnvart sjálfri mér og syninum. Stærðfræðin tók ALLANN minn frítíma og ég náði ekki einu sinni að byrja á heimspekinni. Ég náði heldur lítið sem ekkert að sinna Róberti og hann fann tilfinnanlega fyrir því.  Hann var ekki að sofna fyrr en 22-23 á kvöldin eftir mikinn grátur og köll á mömmu sína. :cry: Hann stendur alltaf uppí rúminu sínu og breiðir út faðminn og kallar, mamma mín, komdu til mín, ég elska þig, allt þetta, með stóórum skammti af ekkasogum, bugaði mömmuna.

Ég get alltaf farið í nám en hann er bara ungur einu sinni og ég vil ekki að hann upplifi æskuna sína svona. Við eigum bara hvort annað. Svo var hann farinn að vakna alla morgna, þegar ég var að reyna að komast á æfingu og byrjaði að hágráta og biðja mig um að fara ekki. Ég fór því ekkert á æfingu í síðustu viku, fyrir utan mánudaginn. Ég ákvað svo að sleppa alveg æfingum þá vikuna og eiga tíma með honum uppí bústað um helgina.

Þetta hefur haft sitt að segja því hann sofnaði vært kl 20 í gærkvöldi og vaknaði ekki þegar ég fór á æfingu í morgun. :haha: Hann hefur bara þurft á mömmu sinni að halda þessi elska.

Hvað getur maður sagt, mömmur eru bestar!! :haha:

En nú sé ég fram á að geta farið á æfingu á morgnana og sofnað kl 22 á kvöldin eins og ég vil gera. Get ekki beðið eftir að sofna í kvöld. Ég eeelska að sofa.

Ég var svooolítið þreytt eftir æfinguna í morgun, fór beint í sturtu eftir að ég kom heim og lagðist svo uppí hjá Róberti til að vekja hann. Það gekk ekki betur en svo að ég steinrotaðist og vaknaði kl 8 með kjálkann samanlímdan af tyggjóinu mínu :lol: Oh hvað ég hefði verið til í að liggja þar til hádegis, ok allavega til 10.

Jæja, þangað til næst.

Ciao


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:46:19 / Hafdís

Lægð

Þetta eru erfiðir dagar.

Skammdegið er farið að hafa áhrif og ekki bætir út ömurlegt veður. Mér finnst ég stundum hreinlega vera að drukkna. :cry:

Ég reyni að vera eins skipulögð og ég get.

Vakna 5:30 og fara á æfingu frá 6-7

Vinna 9-17

Sæki barnið 17:30 og hann fer að sofa kl 20, þá hef ég c.a. 3 klukkutíma til að læra. Ég er í 2 fögum í fjarnámi og þar af er stærðfræði sem er erfiðast fyrir mig.

Núna er það svoleiðis að ég er komin eftirá í báðum fögum. Sonurinn er í uppreisn og neitar að sleppa hendinni af mömmu sinni. Hann vaknar rúmlega 21 á kvöldin og sofnar ekki aftur fyrr en ég kem inn, svo vaknar hann þegar ég ætla að fara í ræktina á morgnana og grætur úr sér augun yfir því að ég skuli vera að yfirgefa hann. Ég hugsa stundum með mér, ætli honum finnist mamma sín alltaf vera að fara? Það er ekki skemmtileg tilhugsun. Hann þarf meiri tíma með mér en ég veit ekki hvar ég á að finna hann :cry:

Ég reyni að nýta helgarnar eins og ég get en ég er bara svo úrvinda á líkama og sál stundum að ég hef ekki orku í neitt. Ég dröslast þó alltaf í vinnuna og stundum með kökkinn í hálsinum, eins og ég er í dag. :cry:

Smá sjálfsvorkun í gangi en æj, stundum verður maður bara að ausa út úr sér, þó það sé á prenti.

Ég finn að ég þarf tilfinnanlega að fara að komast uppí bústað. Guðbjörg vinkona ætlar að koma með mér og við ætlum að hafa grislingana með okkur, þá geta þau leikið sér saman á meðan við lærum en við erum báðar í einu sameiginlegu fagi í skólanum. Svo ætla ég að reyna að fara svolítið bara ein með hann líka, þá eigum við okkar quality time. Ekki veitir af.

En jæja, ég skal hætta þessu væli og halda áfram að vinna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 10:43:39 / Hafdís

Úffh...

Ég sit hér og hreinlega svitna við tilhugsunina um það að flakkarinn minn gæti mögulega verið dáinn. :cry:

Litla villidýrið mitt neitaði að fara á leikskólann í morgun og var að hlaupa undan mömmu sinni og flækti sig í snúrunni og minn heittelskaði flakkari féll kylliflatur í gólfið. Ég tók andköf og greip fyrir andlitið. Ég tók hann upp og setti á borðið, ákvað að láta hann eiga sig þangað til ég kem heim í dag. Róbert fór alveg í flækju greyið og ég þurfti að sannfæra hann mikið um að þetta hefði bara verið óhapp og skammaði hann auðvitað ekkert. Ég vona að diskurinn sé í lagi, vil alls alls ALLS ekki missa allar myndirnar, barnaefnið og pornið, haha nei djók. :lol:

En helgin var fremur róleg. Ég var eitthvað asnaleg í hnénu svo ég var ekkert að gera mikið. Ég fór reyndar á laugardeginum til ömmu og mannsins hennar og var að hreinsa til í tölvunni þeirra. Keypti minnislykil, installaði forriti, minnkaði allar myndir, flokkaði og setti inn á lykilinn. Útbjó svo leiðbeiningar svo þau gömlu gætu reynt að gera þetta sjálf.

Róbert fékk sleikjó hjá ömmu sinni eins og venjulega og fjúffh... hann varð nett hyper. Hann fékk smá útrás með því að ryksuga heima hjá þeim með ljótri næstum ekkert watta handryksugu. Hann skemmti sér þó yfir því.

Á sunnudaginn var allt í hers höndum. Sleikjóinn hélt áfram að kikka inn og hann hafði enga stjórn á sér. Hann söng allan daginn með þvílíkum hávaða, dansaði um allt, henti bókunum sínum um allt. Dótið og púðarnir voru komnir út um öll gólf, þá fór hann uppí rúmið mitt og hoppaði endalaust. Svo varð mér allri lokið þegar hann var farinn að kasta sér af gluggakistunni og í rúmið. Svo náði ég honum í smá ró, lét hann leggjast í rúmið mitt og horfa á Dora the Explorer í flakkaranum, þið vitið, þessum sem datt í morgun *sniff* :cry:

Svo kem ég inn í herbergi eftir svona hálftíma og sé eitthvað skrítið í hausnum á honum. Þegar betur var að gáð var TYGGJÓKLESSA föst í hárinu á honum. OOOoooohh ég sem var að vona að allt dramað væri búið. En neeeiii, ég makaði matarolíu í hausinn á honum og hann sem er mesta pjattrófa EVER, var ekki sáttur við mömmu sína, öskraði eins og sannri dramadrottningu sæmir og barðist um eins og brjálæðingur. Svo tók við greiðuvinnan en auðvitað þarf að greiða svona ógeð úr hárinu. Það var nú bardagi sem mig langar ekki að endurtaka aftur í bráð. :S

Ekki nóg með það, eftir allar þessar hamfarir og drengurinn var loks farinn að sofa ætlaði ég að taka hengja upp þvottinn sem ég var að þvo og opnaði vélina, þá frussuðust tugir andskotans lítrar af vatni út úr henni og allt á floti í þvottahúsinu. :^) Nú var farið að sjóða á mér. Þá hafði minn elskulegi sonur breytt stillingunum á þvottavélinni, ekki í fyrsta sinn og hún stoppaði bara full af vatni. Ég flýtti mér svo mikið að loka að hún lokaðist ekki alveg, það klemmdist flík á milli og ég þurfti að opna hana tvisvar í viðbót til að ýta flíkinni inn og loka. Þá tóku við þrifin. Það var gjörsamlega allt gólfið á floti. :cry: Og ég ekki í stuði fyrir meira þennan dag.

En daddaraaaa aðeins 5 dagar í craaaazy stuð í bústaðnum með pæjunum. Það verður ekki mikill farangur, aðallega vodki og bland :haha: Það verður kokteil hour 24/7 8) Ég fer á föstudeginum og að öllum líkindum kemur Gugga líka og vonandi Tinna. Ég held að hinar komi ekki fyrr en á laugardeginum, þá verðum við hinar búnar að sinna gæðaeftirlitinu og athuga hvort maturinn og vínið sé örugglega í lagi. Einhver þarf að gera það. ;)

Ég ætla að gera ostasalatið mitt fræga eða puttasalatið, en það fékk þá nafngift eftir að ég tók framan af fingrinum á mér þegar ég var að gera salatið fyrir hitting. :$ 

Og Bjöddi, þetta er alveg hollt salat!! Það er bara smááá ekki hollt í því, það er 1/4 af majonesi og 1/4 af sýrðum rjóma, jú ok, svo ostarnir en svo er bara ávextir og grænmeti. ;)

It's all good.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 22:36:48 / Hafdís

Back to the colemines

Jæja, þá er fríið búið og rútínan er öll að komast á aftur. Drengurinn er kominn í leikskólann og á nýja deild með eldri krökkum og mér fannst hann fara úr því að vera litla mömmubarnið í stóra strákinn minn á 2 dögum. Hann tekur upp eftir öðrum og stælarnir eru eftir því.

Ég er líka byrjuð að vinna og það er nóg að gera. Ójá, manni leiðist sko ekki í vinnunni minni. En ég skemmti mér þó eiginlega alltaf vel enda svo skemmtilegur mórall.

Ég er svo byrjuð að æfa undir leiðsögn og svipuhöggum einkaþjálfara. Þennan mánuðinn verð ég 3svar í viku hjá honum og 4 sinnum frá og með sept. Ég fer svo inn á milli eins og ég nenni eða fer bara út að labba, eins og um helgar, þá tek ég "stóra strákinn" minn með mér í göngutúr.

Það er ótrúlega gott að vera byrjuð. Ég tek daginn snemma og vakna að verða 5:30. Ég er mætt í ræktina rétt fyrir 6 og er búin kl 7. Þá get ég farið heim og í sturtu í rólegheitunum og svo vek ég litla kallinn í rólegheitunum. Ekkert verið að snooza yfir sig og allt í pati. Þetta er bara nice. Svo fáum við okkur morgunmat saman og förum í vinnu og leikskóla. Þetta er æðislegt prógram og kominn tími á að maður byrjaði, þótt fyrr hefði verið.

Ég sé fram á að ég vilji gera þetta að mínum lífsstíl, finn mig vel í þessu, þó ég þurfi að vakna snemma, þá finnst mér það bara ekkert mál, finnst erfiðast að sofna á kvöldin.

Það eru svo bara 2-3 vikur í skólann en ég er að taka fjarnám. Ég tek 2 fög en fæ svo einkaþjálfunina metna inn sem einingar. Ég er að skríða í átt að stúdent sem ég asnaðist aldrei til að klára. Tók eitt ár en fannst ég svo vera of töff fyrir skóla og fór að vinna, idiot. Þetta kemur þó það komi hægt, ég tek þetta með vinnu og fleiru svo ég vil ekki taka of mikið í einu, ég verð að hafa einhvern tíma fyrir móðurhlutverkið.

En svo þarf maður víst félagslíf líka. Ég er nú sú allra lélegasta að sinna því. Fer aldrei nokkurn skapaðan hlut. Ég ákvað þó að hóa saman stelpunum í sumarbústaðinn. Við förum 1. sept. og það verður crazy mikið stuð. Það verður ár frá því við fórum allar saman síðast, barnlausar og alveg kominn tími á þetta. Ég lofaði að vera ekki veik núna en síðast var ég í móki með um og yfir 40 stiga hita og hafði enga rænu, hélt mér ekki vakandi. Fór samt haha :haha: læt sko ekki smá hita og rænuleysi stoppa mig í að "skemmta" mér.

Við verðum vonandi allar 7 sem komumst en ég geri ekki ráð fyrir að allar geti gist. Við ætlum að liggja í bleyti í heita pottinum, sötra á köldum kokteilum og brugga köld kvennaráð. Nei nei, bara kjaft, góður matur, góður félagsskapur, spila og svona, eintóm notalegheit. Ég get varla beðið eftir að sötra kokteilinn minn, sem heitir Vodka Gimlet *sluuurp* en Steinþór bróðir kom mér upp á þetta síðasta gamlárskvöld. Hann gerir hann best, spurning um að panta hann sem barþjón í bústaðinn. Hmm... alveg umhugsunarvert.

En ég var að lesa bók í kvöld, Með Lífið að Láni og þar er talað um að setja sér markmið og svoleiðis. Ég er búin að ákveða það að ef og ok, ÞEGAR ég kemst í mína réttu þyngd og er sátt við sjálfa mig, þá ætla ég að skella mér til Minneapolis og versla mér föt. Og hana nú! Ég veit ekki, staðsetningin gæti breyst, langar alltaf svolítið að fara aftur til Canada og USA hefur nú aldrei heillað mig, sérstaklega ekki eftir 9/11 en ég er paranoid þegar kemur að svoleiðis hlutum. Held það sé bara svo rosaleg upplifun að fara til Minneapolis og mig langar að prófa.

En allavega, ég HELD að þetta sé bara orðið gott í bili, þarf að fara að sofa enda aukaæfing hjá mér í fyrramálið og það verður því enginn þjálfari að berja mig áfram. Verð að vera dugleg.

Toodles


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 21:57:52 / Hafdís

Veit aldrei hvað ég á að skrifa hér...

Hei allí úbba

Svona heilsa svíarnir, eða svona næstum því, örugglega ekki eins skrifað. :lol:

Hvað á maður að segja? Það hefur svosem ekki margt á daga mína drifið undanfarið. Ég er búin að eignast 3 frændur, á öðrum staðnum voru það tvíburar, bara flottir strákar sem fæðast í þessar ættir mínar.

Systir mín á von á sér á næstu dögum og ég þori að veðja að hún er með 3ja strákinn sinn. Endalausir strákar allt í kring, enda veitir ekki af að betrumbæta þetta kyn ;)

Annars er bara vinna, barn, sofa, lítið gert af því reyndar undanfarið. Sonur minn vaknaði t.a.m. í gær klukkan rúmlega 5 um morguninn og vildi horfa á barnaefni. HUH!!! Ekki í boði á svona óguðlegum tíma takk fyrir. Það er erfitt að útskýra fyrir tæplega 3ja ára barni að það sé ennþá nótt, þegar það er hábjart úti. Ég fór svo auðvitað að vinna og þegar ég kom heim tók við önnur vinna, þá að hjálpa mömmu að setja á brauðtertur, ætli við höfum ekki sett á einar 6 tertur. Tilefnið var áttræðisafmæli ömmu minnar í Hveragerði. Síhress pæja þar á ferð. Við vorum að fram á miðnætti og ég gat ekki sofnað fyrr en rúmlega 2. Svo var auðvitað vaknað snemma til vinnu og ég rauk svo heim í hádeginu því mamma var í algjörum vandræðum og tímaþröng með að skreyta terturnar svo ég fór snemma heim. Allt reddaðist þetta og afmælið var stórfínt, góðir gestir, frábært veður og krakkarnir voru mest megnis úti að leika sér, þar á meðal litli flóttakötturinn minn sem er alltaf að stinga af og ath. hvað hann kemst langt. 8)

Við mamma áttum svo pantaða miða á tónleika í kvöld. Það eru tónleikar sem ég er búin að bíða eftir síðan í fyrra. Tónleikar með Eivör og Ragnheiði Gröndal við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Í gær sá ég að Ragnheiður forfallaðist og í stað hennar kæmi Dísella Lárusdóttir. Ok, ég sætti mig við það, bara að ég fái að hlusta á sönggyðjuna hana Eivör, sem mér finnst yndisleg, mér finnst hún hálf yfirnáttúruleg.

En af því að ég er svooo “heppin”, þá sá ég á mbfokkingl.is í morgun að Eivör forfallaðist líka vegna veikinda. Ég veit að það er ekkert við því að gera en KOMM ON, þurftu það að vera MÍNIR tónleikar, sem ég hef beðið svo óþreyjufull eftir. Oh ekki nóg með það, fyrirsögnin á fréttinni var “Diddú og Dísella bjarga kvöldinu” MY ASS. Ég hringdi med det samme í Sinfó og heimtaði endurgreiðslu. Bara fúlt. Mig daaauðlangar á þessa tónleika. :cry:

Úúú.. ekki má nú gleyma að segja frá því að ég fékk mér flakkara í dag. Jamms, er hér með orðin algjör tæknimella. :) Fékk mér 1 stk. 400 gb. disk líka. Þetta fékk ég á spotpris í vinnunni, auðvitað :haha:

Nú er ég komin með fullt af barnaefni fyrir masa litla og nokkrar bíómyndir fyrir mömmuna sem leiðist afskaplega þunn dagskrá sjónvarpsstöðvanna. Þetta verður líka frábært þegar masi er veikur og á ferðalögum, þar sem það er hægt að tengja þetta við hvaða sjónvarp sem er. Ég ætla því heldur betur að nýta mér það að taka þetta upp í bústað og norður í sumar. ;)  Stelpan er svo sniðuuuug. Ég kem mér sífellt á óvart hahaha.:haha:

En jæja, hef ekki meira að segja í bili.

Farvel og god natt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 23:20:57 / Hafdís

Skömm í hattinn

Já ég fæ reglulega skömm í hattinn fyrir það hvað ég er löt að blogga, getur maður ekki ráðið einhvern í þetta fyrir sig? :lol:

Annars er nú bara lítið að frétta. Sumarið er bara komið með annan fótinn í dyragættina og það lifnar yfir fólki finnst mér.

Ég fór út úr vinnunni í dag og hélt ég væri að sjá ofsjónir, það var mý oll óver ðe pleis. Þetta var augljóslega skipulögð árás, því þær birtust bara allt í einu þarna og allar á mig. Jakk.. HATA MÝ. Ég verð hálf taugaveikluð í kring um þessi kvikindi því þær fara um allt, inn í eyru, augu, munn og nef. :^) Enough about "mý". ;)

Júróvisjon, ÉG ELSKA JÚRÓVISJON. Ég væri til í að hafa það tvisvar á ári. Mér fannst ótrúlega mörg góð lög í ár. Yfirleitt finnst mér svona 1-3 góð en ég var eitthvað viðbjóðslega ligeglad í ár og fannst svona 4 leiðinleg. Sumum þurfti ég reyndar að venjast en ég dilla mér alveg við þetta flest sko. Sigurlagið fannst mér sko ekki eiga að vinna þótt það væri vel sungið, mér fannst ég vera að horfa á jarðaför í beinni þegar þær voru á sviði. Djísús, lighten up people. En þetta var bara gaman. Við grilluðum gourmet mat hér fyrir keppnina. Ég, systir mín og bróðir, systurdóttir mín og krúttmundur minn. Ég var með (Hrefna haltu þér ;) ) lambafille frá Gallerí Kjöt sem var búið að meyrna í 5 daga og marinerast í sólahring. Grillað, svo var bökuð kartafla, maís, köld hvítlaukssósa og messímas eins og sonur minn segir, það þýðir Pepsi Max. :D

Drengurinn borðaði auðvitað bara gular baunir og pylsubrauð m.öllu nema hráum. Hann getur torgað þrem heilum svoleiðis brauðum, ótrúlegt en satt, eins og guttinn er lítill.

Kosningarnar voru sama dag *hrollur* en ég þoli þær ekki. Nýtti mér þó að sjálfsögðu minn rétt til að kjósa og viti menn, ég kaus rétt. Fyrir mestu fannst mér að steypa Samfylkingunni af stóli hér í firðinum. Fæ nettan kjánahroll þegar ég sé bæjarstjórann.

Mmmm....frí á morgun, uppstigningadag, svo bara rólegur föstudagur og sveitin strax eftir vinnu. Love it. Momz kemur sennilega með drenginn minn til mín í vinnuna svo ég geti farið beint, það sparar mér alveg 2 tíma. Munar um minna. Við fáum svo flotta gesti á laugardeginum en það koma 3 dömur úr vinnunni með krakkana sína og við ætlum að kíkja á sauðburðinn sem stendur nú sem hæst. Svo er planið að fara í smá fjöruferð og bara leika uppí bústað, grilla saman og svona. Það verður stuð stuð stuð.. Jæja, ég ætla að fara að sofa, ég ætla alltaf að fara snemma inn, enda svo uppí rúmi milli 23 og 24, kveiki þá á tv'inu, ræð ekki við það, þetta er bara default stillt inn í systemið hjá mér, svo hangi ég "óvart" yfir því til 1 eða 2. Og auðvitað alltaf jafn þreytt í vinnunni. Ömurlegt. En nú er ég farin inn.

Ciao 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 20:25:47 / Hafdís

Kominn tími á færslu

Halló gott fólk.

Já, ég er orðin frekar löt við þetta blogg enda fer tími manns í allt annað þessa dagana. Páskarnir nýafstaðnir og það er að koma þetta tímabil þar sem maður vinnur yfirleitt bara 4 daga í viku. Það komu páskarnir, svo kemur uppstigningadagur, sumardagurinn fyrsti og so on. Þetta er ágætt en mætti vera á mánudegi eða föstudegi, í stað þess að þetta er allt saman á fimmtudegi, leiðinlegt að slíta vikuna svona í sundur. Annars má alveg vera bara líka frí á fimmtudeginum auk föstudags t.d. Það er bara kósý. :D

Um páskana fór ég í skírn og þaðan uppí bústað með pjakknum mínum. Var svo reyndar veik svo við fórum heim á páskadag. Er búin að vera heima alla vikuna en fer að vinna á morgun. Get eiginlega ekki beðið eftir að komast aftur í vinnu, maður fær hálfgerð fráhvarfseinkenni enda fín vinna. Hlakka þó ekki mikið til að fara yfir tölvupósta heillar viku :$ þeir verða líklega um eða yfir 100.

Ég er aðeins farin að pæla í sumrinu. Síðasta sumar fékk ég mjög lítið frí eða um 2 vikur og var minnir mig allan tímann uppí bústað með strákinn. Núna langar mig hins vegar að cruisa aðeins um landið mitt fallega en ég verð í 4 vikna fríi núna, það gerir leikskólalokunin. Við mæðgin ætlum að skella okkur norður í land að heimsækja vini. Við byrjum líklegast á Siglufirði og höldum svo til Akureyrar þar sem ég er búin að fá orlofsíbúð á leigu í nokkra daga. Það verður bara kósý hjá okkur. Lára vinkona og co eru semsagt nýflutt á Sigló og Dísa, gamla vinkona mín er á Akureyri með manni og barni, hef ekki heimsótt hana í nokkur ár, skömmin ég. :$  En nú verður bætt úr þessu. Ég ætla að kaupa litla veiðistöng handa krúttmundi og við skellum okkur kannski á bryggju eða við vatn að veiða aðeins. :haha: Svo verður maður nú eitthvað aðeins í bænum væntanlega en ég ætla að reyna að vera eins mikið og ég get uppí bústað, það er svo gaman að vera þar. Nú er krútti orðinn það stálpaður að ég get farið með hann í fjöruferð og göngutúra um sveitina, bara yndislegt.

En jæja, stelpan ætlar að hendast í sturtu og slaka á fyrir komandi vinnuviku. Adios amigos.

Hafdís, næstum því komin í sumarskap. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 22:13:59 / Hafdís

Ohhh það er föstudagur á morgun (flöskudagur) og ég er að fara í sumarbústaðinn með litla pjakknum mínum. Get ekki beðið.

Ég er að safna smá tónlist saman til að hlusta á í græjunum á leiðinni og ég bara verð að deila með ykkur lögum vikunnar og örugglega komandi vikna. :haha:

http://www.youtube.com/watch?v=usEePvRuiLI  Ég eelska þetta, endalaust krúttlegt.

http://www.youtube.com/watch?v=usEePvRuiLI

 

GÓÐA HELGI!! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7